Vitræn hæfniVæntanlegur

Hvernig getur áhættustýring eflt sjálfbærni og seiglu fyrirtækja og skapað samkeppnisforskot?

09:00
Á Teams

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hvernig markviss kortlagning, byggð á mikilvægisgreiningu og innleiðingu viðeigandi staðla, hjálpar fyrirtækjum að greina áhættu, meta tækifæri og forgangsraða aðgerðum.

Áhersla verður lögð á hvernig niðurstöðurnar geta mótað stefnu, fjárfestingar, innkaup og mannauðsmál.

Þannig verður áhættustýring hluti af daglegri ákvarðanatöku og grunnur að aukinni seiglu og langtímaverðmætasköpun fyrirtækja.

Hver verður með okkur?
Soffía S. Sigurgeirsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Langbrókar.

Hún hefur um árabil starfað sem stjórnendaráðgjafi fyrir innlend og alþjóðleg fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Ráðgjöf hennar miðar að því að efla sjálfbærni og ábyrgð í starfsemi og tengja þær áherslur við heildarstefnu, áhættustýringu og langtímaárangur.

Hún aðstoðar fyrirtæki við að greina tækifæri, áskoranir og áhrif starfseminnar á efnahag, samfélag og umhverfi. Á grunni mikilvægisgreiningar vinnur hún með stjórnendum að stefnumótun og innleiðingu markmiða, aðgerða og mælikvarða, með hliðsjón af alþjóðlegum stöðlum á borð við ESRS, GRI og viðeigandi ISO-staðla. Áhersla er lögð á að styrkja stjórnun, efla gæði og draga úr áhættu.

Soffía hefur jafnframt víðtæka reynslu af almannatengslum, breytingastjórnun, kynningar- og markaðsmálum. Hún tengir þannig stefnu og árangur fyrirtækja við skýra og trúverðuga miðlun sem styður við ímynd þeirra og traust hagaðila. Hún hefur leitt innleiðingu sjálfbærni og skýrslugerðar hjá fjölmörgum fyrirtækjum, stýrt vinnustofum og rýnihópum og leitt samtal og samstarf við hagaðila.

Soffía er með M.Sc. í alþjóðasamskiptum frá London School of Economics og B.A. í sálfræði frá Háskóla Íslands, þar sem hún lagði jafnframt stund á heimspekinám. Hún hefur einnig vottun frá Global Reporting Initiative (GRI) í skýrslugerð um samfélagsábyrgð fyrirtækja.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi