Stafræn og tæknileg hæfniVæntanlegur

Hvernig þú getur byrjað að vinna hraðar, skýrara og skapandi með gervigreind — strax.

09:00
Á Teams

Á þessum Dokkufundi fáum við að sjá á einfaldan og hagnýtan hátt hvernig hægt er að nýta gervigreind til að spara tíma, vinna betur og einfalda dagleg verkefni.

Áherslan verður á raunveruleg dæmi, verkfæri sem fólk getur byrjað að nota strax og hvernig gervigreind getur orðið að öflugum samstarfsmanni í stað þess að vera bara enn eitt tækið.

Hver verður með okkur?
Stefán Atli Rúnarsson.
Hann er er fyrirlesari og ráðgjafi sem sérhæfir sig í hagnýtri notkun gervigreindar.

Hann hefur kennt þúsundum Íslendinga að nýta gervigreind í starfi og haldið námskeið og erindi fyrir fjölmörg fyrirtæki og stofnanir.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi