Stafræn og tæknileg hæfniVæntanlegur

Starfsfólkið er byrjað. Fyrirtækið ekki.

09:00
Á Teams

Starfsfólkið þitt notar gervigreind nú þegar, hvort sem vinnustaðurinn veit af því eða ekki. Fyrirtækin sjálf eru hins vegar allt of lengi að bregðast við.

Á flestum vinnustöðum er staðan þessi: eitt venjulegt spjallmenni, engin stefna um hvert á að fara, enginn fjárhagsrammi og engin þjálfun. Ef til er gervigreindarstefna er hún oftast listi yfir það sem má ekki.

Á þessum Dokkufundi fer Ari Auðunn Jónsson yfir af hverju innleiðingin gengur svona hægt á Íslandi og hvað þarf til að hraða henni og komast úr spjalli í alvöru virkni.

Atriði sem skipta mestu:

  • Stefna sem segir hvað má en ekki bara hvað má ekki
  • Fjárhagsrammi sem einhver ber ábyrgð á
  • Verkfærakista sem er valin eftir verkinu en ekki eftir því hvað fylgdi með áskriftinni
  • Þjálfun starfsfólks. 

Að lokum lítur Ari fram á veginn: af hverju hann telur að fyrirtæki, líka þau litlu, muni innan fárra ára reka sína eigin gervigreind innanhúss, og af hverju þau sem bíða núna verða lengi að vinna upp forskotið sem hin ná.

Þú ferð af fundinum með skýra mynd af því hvar þinn vinnustaður stendur og hvað þarf að gerast næst.

Hver verður með okkur?
Ari Auðunn Jónsson, stofnandi GoFlowtics.

Ari þjálfar starfsfólk íslenskra vinnustaða í að nota gervigreind í daglegum verkum og hjálpar fyrirtækjum að koma henni inn í raunveruleg verkferli.

Hann er fyrstur á íslandi til þess að halda námskeið í Claude og höfundur námskeiðaraðarinnar Claude á Íslandi og hefur þjálfað yfir 250 manns úr íslensku atvinnulífi, bæði á opnum námskeiðum og inni í fyrirtækjum.

Nálgun hans er einföld: uppbyggingin fyrst, gervigreindin svo. Fyrst þarf að laga ferlið, svo má sjálfvirknivæða það.

Ari er með Claude Certified Associate vottun frá Anthropic og Generative AI Leader vottun frá Google Cloud.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi