Hvað er að frétta hjá Ísland.is?
Á þessum Dokkufundi verður farið stuttlega yfir þróun Ísland.is, bæði undanfarið og til framtíðar og starfsemi Stafræns Íslands. Megináherslan verður þó á þá stafrænu umbreytingu sem nú á…
Skoða fund →
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um stafræna vegferð, lærdóm og fræðilegar tengingar, uppbyggingu teyma, stafrænar umbreytingar, stafræna verkefna- og vörustýringu og kúltúrhakk – og leitast við að svara þessum spurningum:
Hver verður með okkur?
Þröstur Sigurðsson hjá Stafrænni Reykjavík á Þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar.
Þröstur leiðir Stafræna Reykjavík hjá Reykjavíkurborg. Hann hóf störf hjá borginni 2017 eftir að hafa starfað í 7 ár hjá Vinnumálastofnun sem ráðgjafi og þjónustustjóri.
Helstu verkefni Stafrænnar Reykjavíkur snúa að stafrænni verkefna- og vörustýringu, innleiðingu hugbúnaðar, stafrænum leiðtogum og vefmálum.
Þröstur er með BA gráðu í Tómstunda- og félagsmálafræði frá HÍ, hefur meðal annars lokið PMD stjórnunarnámi frá HR og námi í Digital Innovation Leadership frá Harvard Kennedy School.
Þröstur brennur fyrir stjórnsýslu, vinnustaðamenningu og stafrænum lausnum.
Þröstur er mikill matgæðingur og heldur meðal annars úti litlu matarbloggi á slóðinni töddibrasar.com