Stafræn og tæknileg hæfniVæntanlegur

Hvað er að frétta hjá Ísland.is?

09:00
Á Teams

Á þessum Dokkufundi verður farið stuttlega yfir þróun Ísland.is, bæði undanfarið og til framtíðar og starfsemi Stafræns Íslands.

Megináherslan verður þó á þá stafrænu umbreytingu sem nú á sér stað hjá opinberum aðilum og þá hæfni sem starfsfólk þarf til að leiða hana áfram.

Hvernig nýtum við gögn og tækni af ábyrgð, auðveldum öruggt upplýsingaflæði milli stofnana og mótum þjónustu sem mætir þörfum almennings og fyrirtækja?

Hver verður með okkur?

Birna Íris Jónsdóttir. Hún hefur stýrt Stafrænu Íslandi frá því í nóvember 2023.

Áður gegndi hún stjórnunarstöðum á sviði UT og stafrænnar þróunar hjá Landsbankanum, Sjóvá, Högum og Össuri.

Hún er tölvunarfræðingur að mennt, hefur lagt stund á meistaranám í tölvunarfræði með áherslu á gervigreind, er með MBA gráðu og diplóma í jákvæðri sálfræði.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi