Streita
Á þessum Dokkufundi… Nánari lýsing væntanleg. Hver verður með okkur? Hugrún Linda Guðmundsdóttir hjá Líf og starf. Hún hefur sérhæft sig í streitustjórnun og Mind Body medicine sem…
Skoða fund →
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hugarfar grósku og leiðir til að tileinka sér það, og ávinning þess að rækta markvisst með sér jákvæðar tilfinningar.
Hugarfar okkar hefur mikil áhrif á hvernig við tökumst á við þau verkefni sem við stöndum frammi fyrir hverju sinni.
Grósku hugarfar (e. Growth mindset) einkennist af því viðhorfi að vinnusemi og seigla skipti sköpum í árangri; að við getum vaxið og lært af reynslunni og tekið þannig framförum. Með því að tileinka okkur hugarfar grósku ráðum við betur við mótlæti, við verðum tilbúnari til að takast á við áskoranir og breytingar, framsýnni og meira skapandi en ef svokallað fastheldið hugarfar (e. fixed mindset) er ríkjandi.
Þá sýna æ fleiri rannsóknir fram á mikilvægi og ávinning þess að rækta markvisst jákvæðar tilfinningar. Þá auka jákvæðar tilfinningar hugræna getu okkar, gera okkur lausnamiðaðri, bæta líkamlega virkni og hæfni okkar til að takast á við áskoranir.
Með réttu tækin og tólin er á færi allra, sem áhuga hafa, að tileinka sér bæði hugarfar grósku og að ýta markvisst undir jákvæðar tilfinningar hjá sér.
Hver verður með okkur?
Sóley Kristjánsdóttir, stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafi.