Á þessum Dokkufundi veltum við m.a. fyrir okkur eftirtöldum spurningum
- Er hægt að deyja úr tilgangsleysi?
- Er maðurinn eina dýrið sem getur dáið úr tilgangsleysi?
- Hvað er að hjá okkur mannfólkinu?
- Hvers vegna er mannlífið svona flókið og sárt?
- Hvaðan kemur allt þetta vesen?
- Hvað er að?
Fyrirlesari dagsins fléttar saman veraldlegri og trúarlegri hugsun um það sem skiptir máli í dag, að taka ábyrgð gagnvart umhverfi og mennsku. Hættan eltir okkur á röndum frá ástarmálum yfir í alþjóðamál – og nú ramba vistkerfi jarðar á barmi ójafnvægis í tómu tilgangsleysi. Hvað getum við gert?
Hver verður með okkur?
Dr. & Sr. Bjarni Karlsson, sérfræðingur hjá Haf sálgæslu og sálfræðiþjónustu.
Meira um reynslu, nám og störf Bjarna hér.