Staldraðu við áður en þú keyrir þig út.
Hvernig tökum við eftir álaginu áður en það fer að kosta okkur heilsu, starfsorku og ánægju – og hvað getum við gert? Það er auðvelt að venjast miklu…
Skoða fund →
Í dag eru fimm ár síðan Guðjón Svansson og fjölskylda hans fóru í tæplega hálfs árs ferðalag um bláu svæðin (Blue Zones) til þess að kynna sér langlífi og góða heilsu en Bláu svæðin eru einmitt þau svæði í heiminum þar sem fólk lifir lengst við góða heilsu.
Eftir ferðalagið skrifuðu þau bókina „Lifðu!“ og fjalla í henni um langlífisleyndardóma bláu svæðanna.
Á Dokkufundinum verður gefin innsýn í það sem þessi svæði eiga sameiginlegt, hvað aðrir geta lært af þeim og hverju, ef einhverju, íslenska fjölskyldan hefur breytt í sínum lifnaðarháttum á þeim tíma sem liðinn er frá ferðalaginu.
Hver verður með okkur?
Guðjón Svansson, ráðgjafi, liðsheildarþjálfari og fyrirlesari hjá Njóttu ferðalagsins.
Guðjón hefur komið víða við í atvinnulífinu, leitt viðskiptasendinefndir út um allan heim, verið hluti af viðbragsteymi Almannavarna og þjálfað stjórnendur.
Undanfarið hefur Guðjón einbeitt sér að liðsheildarvinnu í atvinnulífinu og hjá íþróttafélagi heimabæjar síns.