Á Dokkufundinum verður leitast við að svara nokkrum spurningum – ma. þessum:
- Hvaða erindi á jákvæð sálfræði helst inn á vinnustaði?
- Hvað er átt við með jákvæðri vinnustaðamenningu?
- Hvernig get ég áttað mig á því hvort á mínum vinnustað sé menningin jákvæð?
- Hvað getum við gert til að efla jákvæða vinnustaðamenningu og auka þannig vellíðan og árangur á vinnustaðnum?
Rannsóknir sýna að vellíðan á vinnustað eykur árangur og að það sé fjárhagslega hagkvæmt að hlúa að vellíðan og geðheilsu starfsmanna.
Áhersla verður lögð á hagnýt ráð.
Hver verður með okkur?
Hrefna Guðmundsdóttir, vinnusálfræðingur, markþjálfi og sérfræðingur í jákvæðri sálfræði.