Á þessum Dokkufundi verður fjallað stuttlega um áhrif vinnuumhverfis á fólk og spjallað um mikilvægi þess að sinna málaflokknum vel, sérstaklega í ljósi þess að vinsælu lausninar eru ekki endilega alltaf bestu lausninar.
Hver verður með okkur?
Ólafur Kári Júlíussoner, M.Sc. í vinnusálfræði. Hann starfar hjá DTE ehf. sem Director of People and Culture.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hvers vegna gerum við ekki það sem við vitum að virkar?
Fundur um þekkingu, ákvarðanatöku og framkvæmd. Hvers vegna stranda góðar hugmyndir? Á þessum Dokkufundi verður fjallað um mótsögnina sem felst í að þrátt fyrir bestu þekkingu virðist erfitt…
Árangursrík rekstrarstjórnun á tímum gervigreindar
– Hlutverk áætlanagerðar, fjárhagsupplýsinga og virkrar eftirfylgni. Hvernig geta stjórnendur nýtt fjárhagsupplýsingar, áætlanagerð og gervigreind til að bæta rekstrarárangur fyrirtækja? Góður rekstur byggist á skýrum markmiðum, vandaðri áætlanagerð…
Af hverju taka skynsamir stjórnendur stundum slæmar fjárhagsákvarðanir?
Stjórnendur þurfa ekki að vera fjármálasérfræðingar til að taka góðar ákvarðanir, en þeir þurfa að þekkja helstu kennitölur og skilja hvernig þeir meta og taka áhættu og ákvarðanir….