Vitræn hæfniVæntanlegur

Verkefnastjórnun: Undirbúningur verkefna

09:00
Á Teams

Verkefnastjórnun er ákveðið ferli sem hefst með góðum undirbúningi og skipulagningu. Hvað er það sem einkennir góð verkefni og af hverju ganga sum verkefni betur en önnur? Á Dokkufundinum verður farið yfir nokkra lykilþætti sem þarf að huga að í undirbúningi verkefna og geta skipt sköpun að vel heppnuðu verkefni.

Hver verður með okkur?
Hugrún Ösp Reynisdóttir, leiðtogi verkefnastjóra hjá Veitum.

Hugrún hóf störf sem leiðtogi verkefnastjóra hjá Veitum fyrr á árinu. Þar áður starfaði hún hjá Reykjavíkurborg sem deildarstjóri verkefna- og vörustýringar innan Stafrænnar Reykjavíkur.
Hún situr einnig í stjórn Verkefnastjórnunarfélags Íslands og brennur fyrir hverskonar umbótum og hvernig nýta megi tæknina á sjálfbæran og skynsaman hátt.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi