Vitræn hæfniVæntanlegur

Verkefnastjórnun: Endurnýjun grunnkerfa fjármálamarkaðarins

08:30
Á Teams

Fundurinn er haldinn í samstarfi við Verkefnastjórnunarfélagi Íslands – hann byrjar kl. 8:30 og stendur til kl. 9:45.

RB hefur um áratugaskeið rekið grunninnviði íslenska bankakerfisins, m.a. innlána- og greiðslukerfi viðskiptabankanna og millibankakerfi Seðlabankans. 

Á undanförnum árum hefur umhverfi RB tekið stakkaskiptum þar sem erlendar lausnir hafa tekið við af eldri heimasmíðuðum kerfum ásamt því að eldri vélbúnaður hefur verið útleiddur. Þessi vegferð hefur tekið rúm 8 ár og hafa tekið þátt í þeim aðilar frá RB og bönkunum ásamt erlendum og innlendum samstarfsaðilum.

Í þessari kynningu er stuttlega farið yfir þessi flóknu verkefni og þau skoðuð frá verkefnastjórnarlegu tilliti.     

Hver verða með okkur?

  • Jón Helgi Einarsson, framkvæmdastjóri Hugbúnaðarsviðs RB. Hann hefur starfað hjá RB síðan 2014. Jón Helgi hefur tekið þátt í ofangreindum verkefnum sem þátttakandi í stýrihóp, eigandi (e. sponsor) o.fl.
  • Sandra Dögg Pálsdóttir, verkefnastjóri hjá RB. Hún hefur starfað hjá RB síðan 2013, fyrst sem viðskiptastjóri og síðar sem verkefnastjóri. Sandra hefur meðal annars stýrt innleiðingum á nýjum innlána- og greiðslukerfum (Sopra) hjá hluta bankakerfisins ásamt því að stýra ákveðnum verkefnum sem tengjast útleiðingu stórtölvunnar.
  • Katrín Rögn Harðardóttir, yfirmaður Verkefnastofu RB. Hún hefur starfað hjá RB síðan 2016. Hún kom að Sopra innleiðingunni og heldur núna utan um verkefni sem tengjast útleiðingu stórtölvu RB sem áætlað er að slökkva á innan fárra vikna.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi