Færst hefur í aukana að fyrirtæki verði fyrir tjóni vegna svikastarfsemi í reikningsviðskiptum. Þá hafa óprúttnir aðilar nýtt sér kennitölur fyrirtækja sem eru gamlan rekstur eða liggja jafnvel í dvala og í sumum tilfellum jafnvel með gott lánshæfismat. Með þessum hætti geta þeir sem standa á bak við svikastarfsemina sótt sér vörur fyrir miklar upphæðir án þess að greiða fyrir þær.
Sem betur fer hægt að koma auga á svikastarfsemi með réttu gögnunum og ferlunum við umsóknir um reikningsviðskipti.
Á Dokkufundinum verður fjallað um eftirfarandi:
- Hver eru helstu merkin um svikastarfsemi?
- Hvaða upplýsingar nýtast við ákvörðunartöku um reikningsviðskipti?
- Hvernig er hægt að lesa ársreikninga til að koma auga á svikastarfsemi?
Hver verður með okkur?
Kári Finnsson, markaðs- og fræðslustjóri Creditinfo.