Þróun og framtíð samfélagslegrar ábyrgðar og sjálfbærni
09:00
Á Teams
Á þessum Dokkufundi fáum við yfirlit yfir stöðu samfélagslegrar ábyrgðar / sjálfbærni í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum í samtímanum.
Hvernig hefur samfélagsleg ábyrgð þróast frá því fyrirtækin fóru að sinna henni?
Hver er staðan í málaflokknum í dag og hvert stefnum við?
Hver eru helstu verkefnin sem falla undir málaflokkinn og hvernig hafa viðfangsefnin þróast?
Hvað er nýtt og frumlegt þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð?
Hvar liggja helstu tækifærin?
Hver verður með okkur? Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Festu samfélagsábyrgð.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga
– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu? Á…
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…