Á Dokkufundinum verður fjallað um hvernig AGR hefur farið að því að umbreyta vöru og menningu fyrirtækisins frá því að vinna alltaf mjög sértæka vinnu fyrir hvern og einn viðskiptavin yfir í heim tækni og verkferla. Við fáum innsýn í hvernig AGR hefur umbreytt stefnu og menningu fyrirtækisins samhliða miklum vexti með starfsfólki í 10 löndum, viðskiptavini um allan heim og afar ástríðufullan starfsmannahóp.
Hver verður með okkur?
Sigrún B. Gunnhildardóttir, framkvæmdastjóri vöruþróunar hjá AGR.
Hún er rekstrarverkfræðingur hefur starfað hjá AGR í 10 ár og leiðir vöruþróunarstefnu fyrirtækisins. Aðalmarkmið fyrirtækisins er að útrýma sóun í aðfangakeðjunni og til þess hefur fyrirtækið þróað hugbúnað sem reiknar út áætlað magn af vörum sem viðskipavinur selur og hjálpar honum að hafa réttar vörur, á réttum stað, á réttum tíma.
Samhliða starfi hjá AGR hefur Sigrún tekið virkan þátt í háskólasamstarfi m.a. með því að taka á móti starfsnemum, styðja við meistaraverkefni og halda gestafyrirlestra í háskólum landsins. Sigrún er með B.Sc. gráðu í verkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í aðgerðagreiningu frá Columbia University.