Vitræn hæfniVæntanlegur

Stefnumiðaðir stjórnarhættir: Stýrt með sýn og markmiðum

09:00
Á Teams

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um það hvernig unnið er að innleiðingu stefnu í samstæðu OR.

Samstæðan starfar innan ramma eigendastefnu sem mótar stjórnarhætti hennar og ferli við innleiðingu stefnu.

Með sérstöku verklagi við rýni, mótun og eftirfylgni stefnu er stuðlað að því að stjórnir samstæðunnar hafi nauðsynlega yfirsýn til að sinna stefnutengdu hlutverki sínu og stjórnendur og starfsfólk hafi það veganesti sem þarf til að stýra með sýn og markmiðum.

Hver verður með okkur?
Guðrún Erla Jónsdóttir, Stefnustjóri OR og doktorsnemi á sviði stjórnhátta og stefnu.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi