Slaufun og ábyrgð: Hver ber ábyrgð á mannorði okkar?
09:00
Á Teams
Fjallað verður um ýmsar hliðar á slaufun og svokallaðri slaufunarmenningu. Á ýmsum tímum sögunnar og í ýmiss konar samhengi hefur fólk misst mannorðið, tapað ærunni.
Er það sem hefur verið kallað slaufun á undanförnum árum annars eðlis en „hefbundnari“ ærumissir?
Ríkir um þessar mundir slaufunarmenning með aukinni hættu á útskúfun úr samfélaginu eða hefur það kannski bara færst til hvaða hópar eiga þetta mest á hættu?
Hver á að taka ábyrgð og á hverju?
Ber samfélagið ábyrgð á að gæta þess að þau sem lenda í slaufun, eða tapi ærunni, eigi afturkvæmt?
Hver verður með okkur?Eyja M. J. Brynjarsdóttir, prófessor í heimspeki og formaður námsbrautar í heimspeki við Háskóla Íslands
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga
– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu? Á…
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…