Á Dokkufundinum verður fjallað um skattaleg álitaefni í tengslum við viðskipti yfir landamæri. Áhersla verður lögð á sölu á þjónustu og verður tvíþætt, annars vegar sala erlendra aðila á Íslandi og hins vegar sala íslenskra aðila úr landi.
Hver verður með okkur? Guðrún Björg Bragadóttir, verkefnastjóri hjá KPMG. Guðrún hefur starfað hjá KPMG frá árinu 2008 og var áður skattstjóri Vestfjarðarumdæmis í 6 ár, einnig starfaði Guðrún hjá dönskum skattyfirvöldum. Sérsvið Guðrúnar Bjargar er skattamál félaga og einstaklinga.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga
– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu? Á…
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…