Verkefnastjórnun
Á þessum Dokkufundi… Nánari lýsing væntanlega. Hver verður með okkur? Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri verkefnastofu hjá Orku náttúrunnar.
Skoða fund →
Á Dokkufundinum fáum við innsýn í sjálfbærnivegferð Landsbankans, hvernig málaflokkurinn hefur þróast innan bankans, hver eru aðaláhersluatriðin og hvað er framundan með auknu regluverki. Einnig fáum við skyggnast inn í hvernig málaflokknum er stýrt í bankanum og hvers vegna bankar gegna lykilhlutverki við að ná markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda sem þurfa að nást til að stemma stigu við loftslagsbreytingum og afleiðingum þeirra.
Hver verður með okkur?
Aðalheiður Snæbjarnardóttir, forstöðumaður Sjálfbærni hjá Landsbankanum.
Aðalheiður hefur starfað í sjálfbærnimálum frá 2012, fyrstu árin meðfram öðrum störfum og í Landsbankanum frá 2019. Hún er með meistaragráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá HÍ, BSc í viðskiptafræði frá HR og sveinspróf í klæðskurði og kjólasaum. Áhugi á sjálfbærnimálum kviknaði fyrir alvöru þegar ég starfaði ennþá í fataiðnaði enda er það einn alversti iðnaðurinn fyrir jörðina.