Laun og umbun
Á þessum Dokkufundi… Nánari lýsing væntanleg. Hver verður með okkur? Kristján Sigurðsson, Head of Reward á Nordics svæðinu hjá Nexi Group. Hann er með meistaragráðu í hagfræði/viðskiptafræði frá…
Skoða fund →
Á Dokkufundinum verður farið yfir sögu Creditinfo í sjálfbærnimálum.
Á hagnýtum nótum fer Reynir yfir ferlið frá því að félagið hafði ekki stefnu í málaflokknum yfir í að vera hátt metin af greiningaraðilum og hafa sérstakt vöruframboð á mörgum mörkuðum tengt sjálfbærni.
Hvaða áskorunum og vörðum mætti Reynir og teymi Creditinfo á þessari vegferð og hvernig er framtíðarsýn félagsins á þeim fjölmörgu mörkuðum sem félagið starfar á?
Hver verður með okkur?
Reynir Smári Atlason – Forstöðumaður sjálfbærnimála Creditinfo Group.
Reynir Smári leiðir vöruþróun, upplýsingagjöf og stefnumótun sjálfbærnimála bæði hérlendis og á öðrum mörkuðum Creditinfo.
Hann starfaði sem Lektor við verkfræðideild háskólans í Suður-Danmörku (SDU) áður en hann var ráðinn sérfræðingur hjá Landsbankanum í sjálfbærni.
Hann var einnig einn af stofnendum Circular Solutions.
Reynir Smári er með Ph.D. og MSc. í umhverfis- og auðlindafræði frá HÍ.
Hann sat um þriggja ára skeið í stjórn IcelandSIF og situr nú í stjórn Festu – miðstöðvar um sjálfbærni.