Siðferðisgáttin er þjónusta sem ráðningar- og ráðgjafarfyrirtækið Hagvangur hefur boðið upp á í ríflega tvö ár.
Með þjónustunni gefst starfsmönnum fyrirtækja og stofnana kostur á að koma á framfæri beint til óháðs teymis innan Hagvangs ef þeir verða fyrir óæskilegri háttsemi á vinnustað eða finna fyrir annars konar vanlíðan í starfi.
Á Dokkufundinum mun verða leitast við að veita svör við eftirfarandi spurningum:
- Fyrirkomulag þjónustunnar?
- Hver hefur reynslan verið hingað til?
- Á Siðferðisgáttin heima á allar tegundir vinnustaða?
- Hver er ávinningurinn?
- Hvað hefur reynst áskorun?
Hver verða með okkur?
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi
Yrsa Guðrún þorvaldsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi
Gyða Kristjánsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi