Samspil klassískrar verkefnastjórnunar og Agile hugmyndafræði
09:00
Á Teams
Agile hugmyndafræðin (með Scrum-nálgunina í fararbroddi) hefur verið innleidd hjá mörgum fyrirtækjum. Klassískri verkefnastjórnun og Agile hugmyndafræðinni hefur oft verið stillt upp sem andstæðum og velja þurfi aðra hvora leiðina til að stýra verkefnum.
Á Dokkufundinum verður farið yfir kosti og galla þessara aðferðafræða og reynslusögur varðandi hvernig þær geta lifað saman góðu lífi.
Hver verður með okkur? Aðalbjörn Þórólfsson, ráðgjafi í verkefnastjórnun hjá Projectus.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…
Tækifærin eru sjaldan vandamálið, valið er vandamálið. Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hvernig verðmæti verða til þegar þú velur eitt tækifæri, mælir hratt og þorir að stoppa….
Sprettnálgun – hættu að eyða tímanum í endalausa fundi.
– erindi um hvernig teymi leysa stórar áskoranir með hugviti og réttri sprettnálgun . Flest teymi þekkja þetta: sama áskorunin er rædd fund eftir fund, allir hafa skoðun,…