Persónuvernd: Hvaða persónuupplýsingar um starfsfólk má vinnuveitandi vinna með og hvenær og hverjar alls ekki?
09:00
Á Teams
Skráning vinnuveitanda á persónuupplýsingum um starfsmenn getur talist eðlilegur þáttur í starfsemi hans og mæla ýmis rekstrarleg sjónarmið með slíku. Vinnuveitandi hefur því alla jafna lögmæta hagsmuni af skráningu upplýsinga um starfsmenn, t.a.m. vegna launavinnslu, veikindaréttar o.s.frv. Þrátt fyrir þetta þarf þó gæta að margvíslegum reglum og undantekningum sem eru í gildandi persónuverndarlögum. Á Dokkufundinum fá við ítarlega innsýn í hvað felst í persónuvernd starfsmanna – og hvað ekki.
Hver verður með okkur? Vigdís Eva Líndal. sérfræðingur hjá Persónuvernd.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…
Tækifærin eru sjaldan vandamálið, valið er vandamálið. Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hvernig verðmæti verða til þegar þú velur eitt tækifæri, mælir hratt og þorir að stoppa….
Sprettnálgun – hættu að eyða tímanum í endalausa fundi.
– erindi um hvernig teymi leysa stórar áskoranir með hugviti og réttri sprettnálgun . Flest teymi þekkja þetta: sama áskorunin er rædd fund eftir fund, allir hafa skoðun,…