Gervigreind
Á þessum Dokkufundi… Nánari lýsing væntanleg. Hver verður með okkur? Ari Auðunn Jónsson. Hann er með vottanir frá Anthropic og Google og hefur unnið með Claude síðan 2024….
Skoða fund →
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um fjallar um miðlalæsi og félagslegt netöryggi.
Hvernig við sem einstaklingar þurfum að vera vör um okkur þegar við erum að nota netið til samskipta, upplýsingaöflunar og annara daglegra athafna.
Áhersla verður lögð á upplýsingaóreiðu, samfélagsmiðla, algóritma, botta, gervigreind, djúpfalsanir o.fl.
Markmiðið er að efla upplýsinga- og miðlalæsi þátttekanda og vekja þá til vitundar um hvernig áskoranir upplýsingaumhverfinu geta birts okkur í daglegri notkun á netinu.
Hver verður með okkur? Haukur Brynjarsson, sérfræðingur á sviði upplýsinga- og miðlalæsis hjá Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands.
Hann er fjölmiðlafræðingur að mennt.
Haukur vinnur að fræðslu og rannsóknum sem efla þekkingu og vitund almennings um örugga þátttöku í stafrænu samfélagi, með áherslu á upplýsinga- og miðlalæsi, stafrænt öryggi og vernd viðkvæmra hópa.
Haukur hefur reynslu af því að flytja forvarna- og fræðsluerindi fyrir börn, ungmenni, foreldra, fagfólk og eldri borgara.
Hann hefur lokið þjálfun frá Swedish Psychological Defence Agency í borgaralegum vörnum gegn áhrifum upplýsingaóreiðu.