Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Mýtan um skilvirkni í lífi og starfi!

    Á vefnum

    Í nútíma samfélagi er skilvirkni talin grundvallarþáttur í því að ná árangri, bæði í starfi og persónulegu lífi. Það er hins vegar oft um misskilning að ræða hvað skilvirkni er. Þetta er eitt af því sem Maríanna Magnúsdóttir og Viktoría Jensdóttir verkfræðingar vilja skoða og kenna í nýju námskeiði sínu “Skilvirki leiðtoginn, umbótahugsun í lífi […]

  • Gervigreindarstefna Hagstofu Íslands, mótun og innleiðing

    Á vefnum

    Á Dokkufundinum verður fjallað um stefnu Hagstofunnar um notkun gervigreindar, sem var gefin út í byrjun nóvember. Við fáum innsýn í bakgrunn og tilgang stefnumótunarinnar og stefnumótunarferlið og rakin verða dæmi um þau margvísleg viðfangsefni þar sem gervigreind mun geta nýst í starfi stofnunarinnar. Einnig verður fjallað um vinnu sem hafin er við aðgerðaáætlun á […]

  • Kulnun Íslendinga – hver er staðan 2024?

    Á vefnum

    Um 1 af hverjum 10 starfsmanna á íslenska vinnumarkaðinum upplifir einkenni kulnunar - og má þar nefna að einkenni kulnunar hafa aukist marktækt hjá körlum frá árinu 2023. Þetta það sem m.a. kemur fram í rannsókns Prósents þar sem rannsakað var hvaða starfstengdu þættir gætu verið ástæður streitu og álags, auk þess að skoða hvort […]

  • Viðhorf og reynsla mannauðssérfræðinga hérlendis á aðgerðum sem tengjast jafnvægi milli vinnu og einkalífs

    Á vefnum

    Umræðan um hugtakið jafnvægi milli vinnu og einkalífs hefur verið áberandi í ljósi mikilvægi þess fyrir vellíðan starfsfólks og árangur fyrirtækja og stofnana, en það er orðið eitt mikilvægasta verkefni mannauðssérfræðinga í dag. Með tilkomu breytinga á vinnumarkaðnum síðustu áratugi í formi breytts vinnufyrirkomulags hefur það ýtt undir mikilvægi þess að leita frekari leiða við […]

  • Árangursríkt nýliðunarferli – hvernig höldum við í nýtt fólk?

    Á vefnum

    Mannaðurinn er mikilvægast auðlind hvers vinnustaðar. Því er mikilvægt að byggja sterkan grunn strax frá byrjun. Á Dokkufundinum verður rýnt í nýliðaferlið, mikilvægi þess rætt sem og hvernig vinnustaðir geti hámarkað velferð, vellíðan og afköst nýs starfsfólks samkvæmt rannsóknum. Hver verður með okkur? Íris Björg Birgisdóttir, MS í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun […]

  • Hæglæti: Falið afl til breytinga á lífsstíl og aukinna lífsgæða

    Á vefnum

    Í erindi sínu, mun Þóra Jónsdóttir, formaður Hæglætishreyfingarinnar á Íslandi, kynna fyrir þátttakendum hugmyndafræði hreyfingarinnar um ávinning hæglætis fyrir samfélagið. Hæglætishreyfingin er hreyfing fólks sem hefur tileinkað sér eða hefur áhuga á að tileinka sér hæglæti (e. slow living, einnig simple-living). Hæglæti er svar við hraða og streitu samfélagsins. Hæglæti er val um að lifa […]

  • Er nauðsynlegt að hrósa starfsfólki? Og ef svo, afhverju?

    Á vefnum

    Hefur þú fengið hrós á síðustu 7 dögum? Hefur þú hrósað samstarfsfólki á síðustu 7 dögum? Rannsóknir benda til að þeir sem upplifa að þeir fái það hrós sem þeir þurfa í sínu starfi, sýni meiri helgun, séu ólíklegri til að leita sér að öðru starfi og tengist almennt vinnustaðnum mun betur. Á Dokkufundinum fáum […]

  • Vinnustaðamenning: Sameiginleg forritun hugans og mynstur undirliggjandi hugmynda – eða?

    Á vefnum

    Hugtakið vinnustaðamenning (organizational culture) er margslungið og margar skilgreiningar hafa verið settar fram svo sem; sameiginleg forritun hugans; mynstur undirliggjandi hugmynda sem þróuð er af hópi sem lærir að koma til móts við vandamál sem steðja að honum bæði frá ytri og innri aðstæðum og nýjum meðlimum skipulagsheildarinnar er kennt á þann hátt að það […]

  • Hver á vörumerkið? Samspili vörumerkis, mannauðs og menningar

    Á vefnum

    Á Dokkufundinum verður fjallað um mikilvægt samspil vörumerkis, mannauðs og menningar. Vörumerkjastjórnun snýst meðal annars um arðsemi og þess vegna skiptir uppbygging vörumerkisins öllu máli ef ná á langtíma árangri í rekstri, enda endurspeglast virði fyrirtækis á endanum í virði vörumerkisins. Sterkt vörumerki hefur áhrif á allt fyrirtækið, það má því spyrja sig hver það er innan […]

  • Efnisstefna: Höldum okkur við efnið

    Á vefnum

    Öll vöfrum við um alls konar vefi okkur til skemmtunar og gagns. Sum okkar starfa beinlínis við að skipuleggja og skrifa efni fyrir vefi og á þessum Dokkufundi ætlum við að velta fyrir okkur hvað einkennir gott efni og hvernig við höldum utan um það. Fjallað verður um hvernig fólk aflar sér upplýsinga á vef […]

  • Leiðir til að auka nýsköpun í fyrirtækjum

    Á vefnum

    Á Dokkufundinum verður farið yfir fjölbreyttar leiðir til að efla nýsköpun innan fyrirtækja og hvernig hægt er að yfirstíga algengar hindranir. Hér er bæði horft til nýsköpunar í rekstri og þróunar á nýjum vörum og þjónustu. Það er kjörið að hefja nýtt ár með því að bæta við verkfærakistuna aðferðum sem stuðla að því að […]

  • Stefna, hugtök, stefnumótunarferli og innleiðing með Lego Serious Play aðferðafræðinni. Þetta þarf ekki að vera svona flókið!

    Á vefnum

    Margrét og Ásdís hjá Gemba munu fjalla um hvernig þær hafa nýtt "Lego Serious Play" aðferðafræðina í stefnumótun og teymiseflingu með fyrirtækjum. Að nota kubba eins og Lego í hugmyndavinnu, eflir teymið í bæði samtali og samvinnu, að auki skapast aðstæður sem efla sköpunarkraft og hugarflugsvinnu. Hverjir verða með okkur? Ásdís Kristinsdóttir, vélaverkfræðingur MSc. hjá […]