fbpx
Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Kulnun Íslendinga – hver er staðan 2024?

5. desember @ 09:00 - 09:45

Um 1 af hverjum 10 starfsmanna á íslenska vinnumarkaðinum upplifir einkenni kulnunar – og má þar nefna að einkenni kulnunar hafa aukist marktækt hjá körlum frá árinu 2023. Þetta það sem m.a. kemur fram í rannsókns Prósents þar sem rannsakað var hvaða starfstengdu þættir gætu verið ástæður streitu og álags, auk þess að skoða hvort að aðrir þættir í lífinu geti haft áhrif – þessar breytur eru nýjar í rannsókninni árið 2024 og spennandi að heyra um niðurstöður þeim tengdar.

Um Rannsóknina

Frá árinu 2020 hefur Prósent unnið að því að varpa ljósi á kulnun meðal Íslendinga á vinnumarkaði. Með notkun 16 spurninga úr Maslach kulnunarmódelinu (The Maslach Burnout Inventory, MBI) hefur verið unnið að því að greina þetta flókna fyrirbæri. MBI er fyrsta vísindalega þróaða mælikvarðinn fyrir kulnun og er notaður víða um heim. Rannsóknin mælir þrjár mikilvægar víddir: tilfinningalega örmögnun, tortryggni og afköst í starfi.

Hver spurning er greind eftir starfsgrein, starfsaldri, kyni, aldri og menntunarstigi, svo eitthvað sé nefnt.

Prósent hefur framkvæmt þessa rannsókn í janúar ár hvert síðan 2020, og nú eru komin samanburðargögn frá 2020 til 2024 – fimm ára dýrmæt saga sem gefa innsýn á kulnun Íslendinga á vinnumarkaðinum.

Rannsóknin byggir á um 900 svörum frá einstaklingum 18 ára og eldri á vinnumarkaðinum um allt land.

Hver verður með okkur?

Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents mun kynna helstu niðurstöður.

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

 

 

Upplýsingar

Dagsetn:
5. desember
Tími
09:00 - 09:45
Viðburður Category:

Staðsetning

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.