Líkamsvirðing, útlitsfordómar og það sem skiptir í raun og veru máli
09:30
Á Teams
Á þessum Dokkufundi verður farið yfir nokkrar mikilvægar spurningar sem lúta að líkamsvirðingu og útlitsfordómum:
Hvaðan koma útlitsfordómar?
Hvernig birtast útlitsfordómar?
Hvað eru innri og ytri fordómar?
Hvað eigum við að gera við BMI líkamsþyngdarstuðulinn?
Hvað ef eitthvað eigum við að láta okkur skipta máli?
Hver verður með okkur? Berglind Soffía Blöndal. Hún er klínískur næringarfræðingar (MSc) og doktorsnemi í næringarfræði og starfar sem klínískur næringarfræðingur hjá Heilsuvernd og Heilsugæslunni í Urðarhvarfi, þar sem hún vinnur eftir þyngdarhlutlausum nálgunum til þess að koma fólki út úr vítahring megrunarmenningar. Í frítíma Berglindar er hún svo í stjórn samtaka um líkamsvirðingu.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga
– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu? Á…
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…