Hvað eru kolefnismarkaðir og hvernig fer verslun með kolefniseiningar fram? Hvernig tengist verslun með kolefniseiningar sjálfbærniverkefnum fyrirtækja og stofnana, hvernig er hægt að tryggja raunverulegan árangur og afhverju ættu fyrirtæki að kolefnisjafna starfsemi sína?
Á þessum Dokkufundi skapast gott tækifæri til að kynna sér málefnið sem svo margir eru að velta fyrir sér í stóra samhenginu.
Hver verður með okkur? Guðmundur Sigbergsson stofnandi og framkvæmdastjóri Loftslagsskrár Íslands (International Carbon Registry).
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga
– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu? Á…
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…