Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Inni áttaviti verkefnastjórans – og annarra leiðtoga

09:00
Á Teams

Hvað gerist þegar hefðbundin verkfæri verkefnastjóra og leiðtoga virka ekki lengur?

Í óvissu og undir álagi reynir á innri áttavitann: gildin, sjálfsþekkinguna og dómgreindina.

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um þrjár stoðir innri áttavitans:

  • Sjálfsþekkingu og gildi sem skapa traust og lita ákvarðanir
  • Tilfinningagreind og áhrif hennar á samskipti í teymi
  • Ákvarðanatöku í óvissu og hugrænar skekkjur sem hafa áhrif á alla


Þátttakendur fá hagnýt verkfæri til að taka með sér í næsta verkefni, ásamt Áttavitakortinu, einni blaðsíðu til að vinna með eftir fyrirlesturinn.

Fyrirlesturinn hentar vel verkefnastjórum en ekki síður öðrum leiðtogum. 

Hver verður með okkur?
Aðalbjörn Þórólfsson, en hann er IPMA vottaður sem verkefnastjóri og ráðgjafi í verkefnastjórnun. Hann starfar sjálfstætt undir merkjum Projectus.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi