Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar geta fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu. Vefurinn fór í loftið í núverandi mynd haustið 2020 og hlutverk hans er að vera miðlæg þjónustugátt og koma upplýsingum um opinbera þjónustu á einn stað.
Hvert stefnir island.is, hvað er nýtt á vefnum og hvað er væntanlegt.
Geta bæði einstaklingar og fyrirtæki notað vefinn?
Hvaða þjónusta er mest notuð á island.is?
Er island.is öruggur vefur?
Munu allar opinberar stofnanir vera með vefsvæði sitt á island.is
Er hægt að nálgast veðbókarvottorð á island.is?
Ofl og fl. spuningum verður leitast við að svara
Notendur Dokkunnar geta sent fyrirspurn varðandi island.is á dokkan@dokkan.is og við munum koma þeim áfram til fyrirlesarans.
Hver verður með okkur? Sigurbjörn Reginn Óskarsson, vörustjóri hjá Stafrænt Ísland.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga
– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu? Á…
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…