Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Umbun, árangurstengd laun og þróun launagagnsæis í Evrópu

09:00
Á Teams

Á þessum Dokkufundi mun Kristján fjalla um ýmis atriði tengd umbun og kaupaukakerfum sem hann hefur kynnst í fjármálageiranum í Danmörku.

Þar á meðal:

  • Þau ólíku umbunarkerfi sem Kristján hefur unnið með.
  • Árangursteng laun og hvernig kaupaukakerfi eru beintengd frammistöðu starfsmanna hjá þeim fyrirtækjum sem Kristján hefur starfað hjá.
  • Óíkar leiðir til að bera saman laun
  • Helstu tæki og tól sem fyrirtæki geta nýtt sér í launasamanburði, til að styðja við samkeppnishæfni þeirra.
  • Nýja evróputilskipun um launagagnsæi, sem virðist vera heitasta umræðuefni sérfræðinga á sviði umbunar í Evrópu.
    Hver er tilgangur þessarar tilskipunnar, hvaða áhrif mun hún hafa á fyrirtæki og hvernig eru fyrirtæki að undirbúa sig fyrir áhrif hennar?

Hver verður með okkur?
Kristján Þór Sigurðsson, yfirmaður umbunar (Head of Reward) fyrir Norðurlöndin, Bretland og Eystrasaltslöndin (Nordic Region) hjá ítalska greiðslutæknifyrirtækinu Nexi Group.

Hann útskrifaðist með meistaragráðu frá viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS) árið 2023 og hefur starfað á sviði umbunar í fjármálageiranum í Kaupmannahöfn frá 2021.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi