Hvernig gervigreind eflir sköpunargleði starfsfólks
09:00
Á Teams
Hvaða áskorun vilt þú leysa í þínu starfi? Hvaða tól ertu með til þess að leysa hana á skapandi máta? Ein besta leiðin til þess að fá góða hugmynd er að fá margar hugmyndir. Steve Jobs talaði oft um grein sem hann las í Scientific American þar sem fjallað var um orkuþörf dýra til að koma sér á milli staða. Fuglinn Kondór er það dýr sem var á toppnum yfir minnstu orkuþörfina, en með uppfinningunni á hjólinu komst maðurinn langt fram úr Kondórnum. Steve Jobs talaði oft um að tölvan væri líkt og hjólið fyrir hugann okkar. Núna er gervigreindin þetta hjól fyrir sköpunargleðina okkar. Gervigreind getur hjálpað okkur að fá margar mismunandi hugmyndir og á þessum fyrirlestri mun Birna Dröfn fara yfir hvernig gervigreind getur hjálpað okkur að efla sköpunargleði starfsfólks og ýtt þannig undir nýsköpun og árangur fyrirtækja.
Hver verður með okkur? Birna Dröfn Birgisdóttir, en hún hefur brennandi áhuga á sköpunargleði og hefur rannsakað hana í doktorsnámi sínu. Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra og vinnustofur um sköpunargleði (www.sköpunargleði.is) og hún er meðstofnandi Bulby (www.bulby.com) sem er sköpunargleðihugbúnaður, sem nýtir gervigreind og byggir á rannsökuðum aðferðum til að efla sköpunargleðina.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga
– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu? Á…
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…