Vitræn hæfniVæntanlegur

Hver eru undirstöðuatriði og ferli upplýsingastjórnunar og af hverju hún skiptir máli?

09:00
Á Teams

Fundurinn er samstarfsverkefni Félags um skjalastjórnun og Dokkunnar.

Vaxandi þörf er fyrir kerfisbundna stjórn á upplýsingum fyrirtækja og stofnana þar sem þau eru órjúfanlega tengd við alla skipulagða starfsemi þeirra. Upplýsingarnar sýna hvað hefur verið gert og eru grunnurinn að skipulagningu um hvað muni vera gert í framtíðinni.

Þegar áætlað er að hefja innleiðingu á nýju upplýsingastjórnunarkerfi þarf að huga vel að undirbúningi, innleiðingu ásamt mati og eftirfylgni þannig að vel takist til. Stuðningur, samvinna, samskipti og gott upplýsingaflæði á innleiðingartímanum eru lykilþættir svo að innleiðingin heppnist vel. Hafa þarf hugfast að ekki er aðeins verið að innleiða nýtt kerfi, heldur einnig nýtt vinnulag og nýja menningu.

Aukin stafrænivæðing og góð upplýsingastjórnun leiðir af sér betri umgengni og nýtingu á gögnum. Vinnubrögð verða markvissari, gagnsæi og yfirsýn eykst sem auðveldar allar ákvarðanatökur. Með aukinni sjálfvirknivæðingu sem fylgir stafvæðingu, sparast tími og skilvirkni eykst sem skilar sér m.a. í aukinni starfsánægju.

Á Dokkufundinum verður fjallað um upplýsingastjórnun; hver eru undirstöðuatriði og ferli upplýsingastjórnunar, af hverju hún skiptir máli og hverju er gott að huga að við innleiðingu á upplýsingastjórnunarkerfi þannig að vel takist til.

Hver verður með okkur?
Gunnhildur Lilja Sigmundsdóttir, ráðgjafi hjá SPEKTRA

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi