Hvaða gögn geymir Hagstofan? Gögn sem gætu nýst þér á margvíslegan hátt
09:00
Á Teams
Farið verður yfir tækifæri og áskoranir sem verða til þegar opnað er á aðgengi að gögnum ríkisins. Sérstaklega verður horft til þess hvernig aukið aðgengi og endurnýjun að gögnum ríkisins getur skapað umhverfi fyrir gagnadrifna nýsköpun. Einnig verður aðeins drepið á hvaða gögn þetta eru og hvernig þau geta komið að notum.
Hver verður með okkur? Arndís Vilhjálmsdóttir, sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga
– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu? Á…
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…