Laun og umbun
Á þessum Dokkufundi… Nánari lýsing væntanleg. Hver verður með okkur? Kristján Sigurðsson, Head of Reward á Nordics svæðinu hjá Nexi Group. Hann er með meistaragráðu í hagfræði/viðskiptafræði frá…
Skoða fund →
Fundur haldinn í samstarfi við KIS – Konur í sjávarútvegi, Félag kvenna í sjávarútvegi.
Sjávarútvegur hefur lengi verið ein af okkar undirstöðuatvinnugreinum. Miklar breytingar hafa orðið á störfum í greininni, aukin tæki og fjölbreyttari þekkingarkröfur hafa kallað á fjölbreyttari samsetningu starfamannahópsins. Atvinnutækifærin í greininni eru því fleiri og fjölbreyttari en nokkru sinni.
Á Dokkufundinum fáum við innsýn í þau tækifæri sem leynast í sjávarútvegi og þá kannski sérstaklega fyrir konur, en núna eru um 17% starfsfólks í greininni konur.
Félag kvenna í sjávarútvegi var stofnað árið 2013 af hópi kvenna sem fann fyrir þörf á aukinni tengingu, samstarfi og eflingu kvenna í greininni. Það er markmið félagsins að gera konur sýnilegri bæði innan sjávarútvegsins og utan hans og að fá fleiri konur til liðs við okkur í sjávarútveginum.
Hverjar verða með okkur?
Margrét Kristín Pétursdóttir, formaður KIS og forstöðumaður gæðamála hjá Vísi í Grindavík – og fleiri konur frá KIS.