Hjálparhellan: Fræðslumenning sem byggir á seiglu, samábyrgð og gróskuhugarfari
09:00
Á Teams
BM Vallá var valið Menntafyrirtæki ársins 2026 á Menntadegi atvinnulífsins fyrir framúrskarandi starf í fræðslu- og menntamálum.
Á þessum Dokkufundi verður farið yfir helstu áherslur og ávinning fræðslustarfsins hjá þeim.
Sérstök áhersla verður á mælikvarða, velsældarhagkerfi, inngildingu og Hjálparhellu BM Vallár—samfélagssjóð sem styður áhrifarík verkefni sem skapa jákvæðar samfélagsbreytingar, og er jafnframt nýtt innan fyrirtækisins til að efla samábyrgð og styrkja starfsfólk í að vera „hjálparhellur“ í eigin lífi.
Kynnt verða hagnýt verkfæri úr jákvæðri sálfræði og 10 hamingjulykla sem styðja við stefnu, menningu og árangur fyrirtækisins við að byggja vistvænni framtíð.
Hver verður með okkur?
Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Hornsteins, en hún er reynslubolti á sviði mannauðs- og fræðslumála.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga
– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu? Á…
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…