Töluverð áskorun fylgir því að koma á virku stjórnskipulagi og ná mælanlegum árangri við innleiðingu á samræmdri áhættstjórnun (e. Enterprise Risk Management).
Til eru margar mismunandi aðferðir við framkvæmd áhættumats og kerfi. Þá eru einnig mjög margir sérhæfðir staðlar og aðferðir til að meta hættur.
Það sem fjallað verður um á Dokkufundinum er:
- Helstu staðlar, hlutverk og ábyrgð
- Mat á eðlislægri áhættu (e. inherent risk)
- Mat á eftirstæðri áhættu (e. residual risk)
- Hvernig stýringar (e. controls) hafa áhrif á áhættu
- Slaufugreiningar (Bow-Tie)
- Mælanleg markmið og frammistöðumat
- Upplýsingagjöf og skýrslur
Hver verður með okkur?
Ólafur Róbert Rafnsson, sérfræðingur á svíði áhættustjórnunar og upplýsingaöryggis.
Ólafur hefur sl. 20 ár unnið með fyrirtækjum og stofnunum við útfærslu áhættustýringar, framkvæmd áhættumata og innleitt verklag sem tekur mið af helstu stöðlum og bestu venjum.