Vitræn hæfniVæntanlegur

Heilaheilsa: Hvað er heilaheilsa og hvernig getum við elft heilaheilsuna okkar?

09:00
Á Teams

Hvað er heilaheilsa? Hugrænir þættir, hvað getum við gert til að efla heilaheilsu?

Áhersla á heilaheilsu verður sífellt meiri og sýna rannsóknir að lífsstílstengdir þættir sem og fjölbreytt hugarþjálfun skipta sköpum þegar viðhalda á góðri heilaheilsu út lífið.

Fyrirlesturinn er ætlaður öllum þeim vilja fræðast um heilann, heilaheilsu og leiðir til að efla hugarstarf.

Hver verður með okkur?
Dr. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði og eigandi Heilaheilsu

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi