Er eitthvað af þessum hugsunum að heimsækja þig reglulega:
- ég er ekki nóg
- ég er ljót/ur og feit/ur
- ég mun gera mig að fífli
- aðrir eru að dæma mig
- ég klúðra öllu
- það er allt í rugli hjá mér,
- ég er slæm móðir/slæmur faðir,
- ég mun aldrei komast áfram í lífinu,
- ég er ógeðsleg/ur
- mér mun mistakast
- ég er ömurleg/ur
- ég er glötuð/glataður
- ég get aldrei gert neitt rétt
- ég er heimsk/ur
Sjálfsniðurrif, sjálfsásökun og sjálfsfordæming eru megineinkenni þess að eiga óheilbrigt samband við sjálfan sig, sem jafnframt er ein af meginrótum kvíða, þunglyndis, síþreytu, krónískra verkja og almennrar vanlíðunar.
Við getum ekki verið heilbrigð og frjáls ef við stundum sjálfsofbeldi í formi neikvæðs sjálfsniðurrifs.
Á Dokkufundinum fer Sara yfir tegundir og birtingarmyndir sjálfsofbeldis (niðurrif, sjálfsásakanir, og sjálfsfordæmingar) og leiðbeinir okkur um hvernig við getum stöðvað þessa hugsanir og ferðið í að byggja okkur upp á jákvæðan og heilbrigðan máta í staðinn.
Í lok fundarins leiðir Sara okkur í himneska hugleiðslu og slökun þar sem hugurinn verður endurforritaður til að stunda jákvæða sjálfsuppbyggingu í stað niðurrifs.
Hver verður með okkur?
Sara Pálsdóttir, dáleiðari, fyrirlesari og frumkvöðull.