Á þessum Dokkufundi verður fjallað um gögn frá nokkrum sjónarhornum og af hverju við erum að vinna með gögn og hvernig við vinnum með gögn.
Við fáum innsýn í Big Data, IOT, Artificial Intelligence, Machine Learning og leitast við að svara nokkrum spurningum eins og:
- Þurfum við þetta allt og hvað er þetta?
- Hvaða innviði, þekkingu og hugarfar þurfa fyrirtæki að hafa til að ná árangri með gögn?
- Hvaða eiginleikum leitum við eftir í fólki sem á vinna með gögn?
Hver verður með okkur?
Gunnar Skúlason, sérfræðingur í viðskiptagreind hjá Expectus