Innleiðing gervigreindar – hvað segja kannanir Gallup?
Vinnustaðir keppast við að innleiða gervigreind hraðar en aðrir til að nýta tækifærin sem í henni búa og um leið sveigja frá mögulegum hættum og neikvæðum áhrifum. Á…
Skoða fund →
Á Dokkufundinum er lögð áhersla á að innleiðing gervigreindar snýst ekki eingöngu um tækni heldur um mannlega þáttinn – menningu, viðhorf og breytt vinnulag.
Fjallað verður um helstu hindranir sem skipulagsheildir mæta í innleiðingarferlinu og hvað rannsóknir sýna að stuðli að farsælli notkun. Einnig verður skoðað hvernig gervigreind getur orðið stuðningsaðili sem styrkir mannlega hæfni og gefur starfsfólki rými til að sinna skapandi og þýðingarmiklu starfi.
Hver verður með okkur?
Hanna Kristín Skaftadóttir, Doktorskandídat, lektor og fagstjóri viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst.