Vitræn hæfniVæntanlegur

Gagnsemi staðla kemur skýrast í ljós þegar þá vantar – ekki satt?

09:00
Á Teams

Staðlar eru órjúfanlegur hluti af öllum helstu grunninnviðum samfélagsins (og heimsins), en með þeim eru mótuð kröfur og viðmið sem hafa raunveruleg áhrif á daglegt líf þitt. Stundum eru þeir ekki bara hluti af gangverkinu heldur skyldubundinn formlegur hluti regluverksins líka.

Gagnsemi staðla kemur skýrast í ljós þegar þá vantar. Svona eins og þegar maður er kominn til Bretlands, án millistykkja á raftæki. Flest okkar hugsa svo ekkert um staðla þegar allt virkar vel og daglegt líf gengur sinn vanagang.

Á Dokkufundinum verður fjallað um mikilvægi staðla og virði í samfélaginu með því að fara örsnöggt yfir sviðið og varpa ljósi á þessa risastóru en næstum ósýnilegu stoð í íslensku samfélagi sem létt hefur líf okkar allra. Oftast án þess að við tökum eftir því. Hlutirnir bara virka! Stafræn þróun, sjálfbærni og samfélagsöryggi verða á dagskrá ásamt áformum um fyrirhugaða stöðlun á karlmennsku. Já, þú last rétt. Karlmennsku.

Hver verður með okkur?
Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs.
Hún er kennari, námsráðgjafi og lögfræðingur með amerískt meistarapróf í samskiptastjórnun og íslensk lögmannsréttindi.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi