Laun og umbun
Á þessum Dokkufundi… Nánari lýsing væntanleg. Hver verður með okkur? Kristján Sigurðsson, Head of Reward á Nordics svæðinu hjá Nexi Group. Hann er með meistaragráðu í hagfræði/viðskiptafræði frá…
Skoða fund →
Gagnrýnin hugsun er einn þeirra hæfniþátta sem hafa orðið sífellt meira lykilatriði fyrir menntun og atvinnulíf, ekki síst vegna tilkomu sjálfvirknivæðingar og þróunar skapandi gervigreindar.
Sú hæfni að geta beitt gagnrýninni hugsun verður sífellt verðmætari í framtíðinni þar sem tækniþróun mun halda áfram að breyta vinnumarkaðnum og margs konar leikni og færni færast yfir á svið vél- og hugbúnaðar.
Á þessum Dokkufundi verður farið yfir eðli, einkenni og áskoranir gagnrýninnar hugsunar og útskýrt hvers vegna slík gerð hugsunar hefur aldrei verið mikilvægari en í samtímanum og hvernig má veita henni rými í faglegu umhverfi.
Hver verður með okkur?
Henry Alexander Henrysson aðjúnkt við sagnfræði- og heimspekideild og sérfræðingur við Siðfræðistofnun HÍ