Hvað er að frétta hjá Ísland.is?
Á þessum Dokkufundi verður farið stuttlega yfir þróun Ísland.is, bæði undanfarið og til framtíðar og starfsemi Stafræns Íslands. Megináherslan verður þó á þá stafrænu umbreytingu sem nú á…
Skoða fund →
Hvað er virði? Er það kóði sem virkar, notandi sem brosir, eða samtal sem skilar árangri?
Á þessum Dokkufundi skoðum við hvernig verkefnastýring og vörustýring móta lausnir sem lifa þrátt fyrir ólíka sýn, menningu og kerfi. Við rýnum í keðjuna og hvernig við getum hætt að hökta og byrjað að afhenda virði.
Þetta er hugvekja um samvinnu, breytingar og hvernig við sköpum meira en bara vöru – við sköpum áhrif.
Hver verður með okkur?
Íris Ósk Ólafsdóttir, verkefnastjóri í viðskiptalausnum hjá Advania og
Guðríður Hjördís Baldursdóttir, vörustjóri í sérlausnum hjá Advania.