Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Er starfsfólkinu treystandi fyrir upplýsingum?

09:00
Á Teams

Upplýsingaflæði á vinnustað, hvernig ætti það að vera og til hvers. Af hverju eiga svo mörg fyrirtæki í vandræðum með að skapa eiginlegt traust á vinnustað og hvaða leiðir er hægt að fara til þess að laga það.

Á þessum Dokkufundi verður farið yfir afleiðingar skorts á upplýsingaflæði innan fyrirtækja sem og mikilvægi reglulegrar upplýsingagjafar á vinnustað sem partur af því að byggja upp traust og jákvæða vinnustaðamenningu. Jafnframt fara þær yfir hvað séu gagnlegar upplýsingar, tilgangur reglulegrar upplýsingagjafar og með hvaða hætti sé best að deila þeim.

Hverjir verða með okkur?
Björk Ben og Íris Dögg, stjórnendaráðgjafar hjá Mintos.
Björk og Íris afa viðamikla reynslu úr íslensku atvinnulífi. Þær brenna fyrir að aðstoða stjórnendur og fyrirtæki í að bæta menningu á sínum vinnustað til að auka traust og árangur.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi