Öll vöfrum við um alls konar vefi okkur til skemmtunar og gagns. Sum okkar starfa beinlínis við að skipuleggja og skrifa efni fyrir vefi og á þessum Dokkufundi ætlum við að velta fyrir okkur hvað einkennir gott efni og hvernig við höldum utan um það. Fjallað verður um hvernig fólk aflar sér upplýsinga á vef og hvernig við getum nýtt okkur þá þekkingu til að skrifa fyrir fólk til aflestrar á vefjum.
Hver verður með okkur?
Ingunn Fjóla Brynjólfsdóttir. Hún er mannfræðingur og hefur síðustu ár starfað sem efnishönnuður og ráðgjafi hjá Stefnu. Hún leggur áherslu á mannlega nálgun í tæknilegum lausnum.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Að byggja upp verkefnastofu – hvað þarf til í raun?
– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON. Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum. Fjallað…
Tækifærin eru sjaldan vandamálið, valið er vandamálið. Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hvernig verðmæti verða til þegar þú velur eitt tækifæri, mælir hratt og þorir að stoppa….
Sprettnálgun – hættu að eyða tímanum í endalausa fundi.
– erindi um hvernig teymi leysa stórar áskoranir með hugviti og réttri sprettnálgun . Flest teymi þekkja þetta: sama áskorunin er rædd fund eftir fund, allir hafa skoðun,…