Vitræn hæfniVæntanlegur

Dótakassi verkefnastjórans – helstu forritin

09:00

Á þessum Dokkufundi verður farið yfir ávinning af notkun hugbúnaðar í verkefnastjórnun og helstu forritin sem hægt er að nota fyrir áætlanagerð, samvinnu, áhættustjórnun, eftirlit og greiningu.

Einnig verður farið yfir hvernig hægt er að nota gervigreind sem hjálpartæki í verkefnastjórnun fyrir undirbúning verkefna, áhættustjórnun og umfangsmat.

Fundurinn er haldin í samstarfi við Verkefnastjórnunarfélagið.

Hver verður með okkur?

Aðalbjörn Þórólfsson, ráðgjafi í verkefnastjórnun, Senior PM (IPMA B), Senior PM Consultant (IPMA B)

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi