Stafræn og tæknileg hæfniVæntanlegur

Áskoranir skjalastjórans

09:00
Á Teams

Fundurinn er haldinn í samstarfi við Skjalastjórnunarfélag Íslands.

Á Dokkufundinum verður fjallað er um að tæknilegar áskoranir sem skjalastjórinn er að glíma við í starfi sínu sem og aðrar áskoranir í starfsumhverfi hans.

Eru skjalastjórar að hlaupa nógu hratt í tæknimálum, er starfsumhverfi okkar að breytast, hvaða áhrif hefur sjálfvirknivæðing á starfið okkar?

Hver verður með okkur?
Svava Halldóra Friðgeirsdóttir, MSc. í skjalastjórn, CIP.
Hún starfar sem skjalastjóri Arion banka hf.
Svava hefur unnið við fagið frá árinu 1995 fyrst í Landsbanka Íslands, ANZA, Seðlabanka Íslands, Kaupþingi og í Arion banka.
Hún er einnig prófdómari í upplýsingafræði við Háskóla Íslands og mun verða stundakennari við fagið næsta haust.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi