Vitræn hæfniVæntanlegur

Alþjóðleg skipulagsbreyting hjá Marel

09:00
Á Teams

Skipulagsbreytingar reyna á fjölmarga þætti í menningu fyrirtækja, einkum stjórnendur og starfsmenn, lagaramminn kemur einnig við sögu, skipulag og verkefnastýring svo eitthvað sé nefnt.

Þegar skipulagsbreytingar eru alþjóðlegar þá eiga sömu lögmál við en flækjustigið og umfangið eykst.

Á þessum Dokkufundi verður farið yfir alþjóðlega skipulagsbreytingu hjá Marel sem lauk í lok árs 2021 en þar segir frá umbreytingarferðalagi þriggja alþjóðlegra eininga innan félagsins sem sameinaðar voru í eina sterka heild.

Farið verður yfir hvatann í umhverfinu sem knúði breytingarnar áfram, hvernig Marel nálgaðist verkefnið, umbreytingarferðalagið sjálft og hvaða lærdómur var dreginn upp úr hattinum við uppgjör verkefnisins.

Hver verður með okkur?
Elín Gränz, HR Director of Retail and Food Service Solution hjá Marel

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi