Laun og umbun
Á þessum Dokkufundi… Nánari lýsing væntanleg. Hver verður með okkur? Kristján Sigurðsson, Head of Reward á Nordics svæðinu hjá Nexi Group. Hann er með meistaragráðu í hagfræði/viðskiptafræði frá…
Skoða fund →
Markmið þessa Dokkufundar er að kynna grunninn að skipulagðri og samræmdri áhættustjórnun, sýna hvers vegna hún er lykilatriði fyrir rekstur og ákvarðanatöku, og fara yfir hvernig hægt er að innleiða og starfrækja áhættustjórnunarkerfi sem styður við markmið og öryggi starfsheilda.
Meðal þess sem farið verður yfir er:
Á erindinu verður áhersla á að áhættustjórnun er ekki „aukahlutur“ heldur hluti af daglegu starfi og stefnu — forsenda fyrir áhættumiðaða ákvarðanatöku og stuðning við rekstur.
Hver verður með okkur?
Ólafur Róbert Rafnsson, en hann er reyndur sérfræðingur í upplýsingaöryggi og áhættustjórnun.
Hann er með áratuga reynslu – meðal annars frá störfum hjá KPMG, Capacent og sem ráðgjafi – hefur hann leitt vel heppnaðar innleiðingar á öryggis-, gæðastjórnun og áhættustýringarkerfum fyrir stór fyrirtæki og stofnanir á Íslandi. Hann starfar nú hjá Stiku Solutions þar sem hann leiðir ráðgjöf á sviði öryggis-, áhættu- og gæðastjórnunar.